top of page

Steinbítur með karrymangósósu
Fyrir 4-6
1kg-1,2kg steinbítur
Salt og nýmulinn svartur pipar
3-4 hvítlauksrif (söxuð)
500 ml sósurjómi
200 - 250 gr sweet mangó chutney
1 msk karry
Aðferð:
Brúnið steinbítin á pönnu í smjörklípu, kryddið með salti og nýmuldum svörtum pipar. Bætið við hvítlauknum og karry, hellið sósurjómanum yfir. Bætið út í sweet mango chutney lækkið hitan og látið malla í 8-10 mín eða þar til fiskurinn hefur eldast í gegn.
Prófið einning með öðrum fisktegundum t.d. skötusel, hörpuskel eða keilu.
Þennan rétt er lika hægt að laga með kjúklingabringum en þá þarf að elda lengur.
Höfundur Árni Þór Arnórsson
bottom of page