top of page

Grilluð Hrossasteik með grænpiparhunangssósu og grilluðum fylltum kúrbít

Fyrir 4-6

 

1200-1500 gr hrossalund eða hrossafillet

1 dl olía

1 msk villijurtablanda

Salt og nýmulinn svartur pipa

 

Grillaður fylltur kúrbítur

 

2 stk kúrbítur skorinn í 6-8 cm kubba og takið helming kjarnans í burtu

5 msk fetaostur

2 msk brauðraspur

 

Grænpiparhunangssósa

 

350 gr grísk jógúrt

1 dl AB mjólk

60 gr hunang

2 msk grænn pipar

Salt og nýmulinn svartur pipar

 

Aðferð:

Skerið hrossakjötið í sneiðar og veltið því upp úr olíuunni og villujurtablöndunni látið standa í minnst 30 mín. Lagið grænpiparsósuna. Myljið niður grænan pipar og hitið örítið í hunanginu í örbylgjuofni. Blandið saman við gríska jógúrt og ab-mjólk. Bragðbætið með salti og nýmuldum svörtum pipar. Undirbúið kúrbítinn og fyllinguna. Hitið grillið vel og byrjið á að grilla kúrbítinn. Snúið niður tæmdu hliðinni grillið vel á þeirri hlið og snúið. Setjið á vægan hita og látið fyllinguna í með skeið látið hitna og bráðna í kúrbítinn. Grillið hrossakjötið við góðan hita og kryddið með salti og nýmuldum svörtum pipar. Hrossakjötið skal grilla á sama hátt og nautakjöt.

Berið fram með grænpiparsósunni, kúrbítnum og góðu salati

 

Höfundur Árni Þór Arnórsson

WWW.gottimatinn.is

Join our mailing list

Never miss an update

bottom of page