
Steikt ostaýsa með paprikusalsa
800 gr ýsuflök
3 egg
0,5 dl rjómi
¼ tsk paprikuduft
100 gr pizzaostur
Salt og nýmulinn svartur pipar
1msk smjör
1 msk olía
Aðferð:
Skerið ýsuna í bita. Hrærið saman egg, rjóma, paprikuduft, salt og pipar. Veltið ýsunni upp úr eggjablöndunni og steikið á báðum hliðum á pönnu í smjörinu og olíunni. Setjið ýsuna í eldfastmót og hellið restinni af eggjblöndunni yfir. Stráið pizzaostinum yfir fiskinn og eggjablönduna og bakið við 180°C í c.a. 12 - 14 mín. Berið fram með soðnum kartöflum og paprikusalsa
Paprikusalsa
1 stk rauð paprika
1 stk gul paprika
1 stk græn paprika
1 stk paprikuostur
½ dl söxuða steinselja
50 gr saxaður blaðlaukur
2 msk olífuolía
Salt og nýmulinn svartur pipar
Aðferð:
Skerið paprikina og ostinn í teninga blandið öllu saman og hrærið vel
Höfundur Árni Þór Arnórsson