top of page

Ítölsk ýsa með hreinni jógúrt

Fyrir 4-6

 

1kg -1,2 kg ýsa

Heilhveiti

Olía til steikingar

100 gr rauðlaukur (saxaður)

50 gr sólþurrkaðir tómatar (saxaðir)

500 ml hrein jógúrt

2 msk pestó

1 glas fetaostur

20 stk blandaður ólífur

 

Aðferð:

Veltið ýsubitum upp úr heilhveiti og brúnið í olíu á pönnu. Setjið ýsubita í eldfast mót. Stráið yfir söxuðum rauðlauk og sólþurrkuðum tómötum.

Blandið saman jógúrt og pestó og hellið yfir fiskinn og lokum setjið fetaostinn og ólífurnar yfir. Bakið í ofni við 180° í c.a. 20-30 mín

 

Berið fram með salati og tómötum

 

Höfundur Árni Þór Arnórsson

www.gottimatinn.is

Join our mailing list

Never miss an update

bottom of page