top of page
img_6761.jpg

Mexikófiskur með nachos og salsa

Fyrir 4

 

Innihald:

800 g ýsa eða þorskur

300 g nachos flögur

50 g blaðlaukur

100 g paprika

300 ml salsasósa

125 g rjómaostur með hvítlauk

Salt og nýmaður svartur pipar

Aðferð:

Smyrjið eldfastmót með smjöri. Setjið nachosflögur í formið og raðið fiskinum í bitum ofan á. Kryddið með salti og pipar. Skerið grænmetið fínt niður og stráið yfir. setjið salsasósuna yfir ásamt rjómaostunum. Bakið við 175°C í 25 mínútur.

Borið fram með salati með avacadobitum

Höfundur Árni Þór Arnórsson

www.gottimatinn.is

Join our mailing list

Never miss an update

bottom of page