top of page

Bökuð epli með rjómaosti og karamellusúkkulaði
Fyrir 4-6
Innihald:
5 stk epli
1 msk kanill
I poki 175 gr Dumle Snacks
200 gr rjómaostur
1 dl karamellusúrmjólk
1 eggjarauða
1 heilt egg
120 gr flórsykur
1 msk maisenamjöl
Aðferð:
Skerið eplin í teninga og stráið yfir kanil. Skerið súkkulaðibitana í tvennt og dreifið yfir eplin.
Þeytið eggjarauður, flórsykur og maisenamjöl. Bætið út í rjómaosti og súrmjólk hræra vel saman.
Hellið yfir eplin og bakið við 170°C í 25-30 mín
Höfundur: Árni Þór Arnórsson
bottom of page