top of page
.jpg)
Muslikökur með grískri jógúrt
c.a. 110-120 stk
Innihald
150 gr smjör
200 gr chrunchy hnetusmjör
150 gr hrásykur
150 gr grísk jógúrt
400 gr granólamusli
3 stk egg
1 tsk vanilla
200 gr rúsínur saxaðar (má einnig nota súkkulaðirúsínur)
150 gr haframjöl
1 tsk matarsódi
¼ tsk salt
Aðferð:
Bræðið saman smjör, hnetusmjör og hrásykur. Bætið í jógúrt og hunangsmusli. Bætið í eggjum og vanillu. Bætið að lokum saman við súkkulaðirúsínum, haframjöli, matarsóda og salti. Hrærið vel saman. Setjið á plötu með smjörpappír og setjið deigið á með teskeið eða matskeið eftir hversu stórar kökurnar eiga að vera.
Bakið við 170°C 12-15 mín
Höfundur: Árni Þór Arnórsson
bottom of page