
Steiktur mexikó fiskur með nashosraspi, Mexcikóostasalsa og skyramole
Fyrir 4
Innihald:
800 g ýsa eða annar fiskur
2 stk egg
½ tsk chilliduft
3 dl nachosraspur
2 dl brauðraspur
100 g smjör til steikingar
Aðferð:
Maukið eða brjótið nachosflögurnar. Blandið saman raspinum og chilliduftinu, Brjótið eggin í skál og sláið það í sundur með gafli. Skerið fiskinn í bita of veltið upp úr eggin og raspinum. Steikið í smjörinu á pönnu. Berið fram með mexikóostasalsa og skyramole
Mexikóostasalsa
Innihald:
200 g paprika helst 3 litir
100 g saxaður rauðlalukur
2 dl Salsa sósa
1 stk mexikóostur
Aðferð:
Skerið paprikuna og rauðlaukinn í bita ásamt mexikóostinum. Blandið saman við salsasósuna
Skyramole
Innihald:
200 g skyr
1 stk avocado
Safi af ½ sítrónu
1 msk saxaður koriander
2 tsk agavesíróp
Salt og nýmalur svartur pipar
Aðferð:
Skrælið og takið steinin úr avocadoinu. setjið í blandara og maukið með sítrónusafanum. Bætið saman við skyrinu og agavesírópinu. Kryddið með söxuðum koriander, salti og svörtum pipar
Höfundur Árni Þór Arnórsson