top of page

Fylltur kjúklingur með spínati og sveppum
fyrir 4-6
1 stk heill ferskur kjúklingur reyna að velja stóran
2 msk olía
1 msk rosmarín
100 g laukur saxaður
150 g sveppir saxaðir
1 epli skrælað, kjarnhreinsað og skerið í bita
100 g spínat
50 g ristaðar furuhnetur
1 tsk rosmaryn þurrkað
Salt og pipar
Aðferð:
Þerrið kjúklingin vel og myrjið með olíu kryddið með rosmaryn, salti og pipar. Blandi saman fyllingunni og troðið inn í kjúklingin Steikið kjúklingin við 175° í 60-80 mínútur eða þar til hann er gegnum steiktur. Berið fram með ofnbökuðum kartöflubátum.
Höfundur: Árni Þór Arnórsson
bottom of page