top of page

Haustpottur Lambagúllash

 

800-1000 g lambagúllash

2 msk smjör

Salt og nýmalaður svartur pipar

10-15 ferskir tómatar (eða 1 dós viðursoðnir tómatar)

2 rauðar paprikur (meðalstórar)

2 grænar paprikur (meðalstórar)

3 dl súpujurtir

5 dl lambasoð eða vatn og kraftur

200 g rófur

200 g kartöflur

200 g gulrætur

100 g sellery

2 dl söxuð steinselja

 

Aðferð:

Brúnið lambakjötið í smjörinu og kryddið með aslti og pipar, bætið í tómötum, papriku, súpujurtum og lambasoði. Sjóðið í 20 mínútur við vægan hita. Skerið rófur, gulrætur, sellery og kartöflur í smáa teninga og bætið í sjóðið þar til grænmetið er orðið mjúkt. Þykkið með sósujafnara ef með þarf. Bætið síðast í saxaðri steinselju. Berið fram með góðu grófu brauði.

Gott er að bæta í hvítlauk og chilli ef fólk vill hafa meira bragð Þá er haustpooturinn orðin ítalskur haustpottur.

Árni Þór Arnórsson

Fyrir Kaupfélag Skagfirðinga

Join our mailing list

Never miss an update

bottom of page