
Indversk lambakarry
Fyrir 4-6 persónur:
2 stk meðalstórir laukar skornir gróft
2 stk hvítlauksgeirar saxaðir
1 msk engifer smátt saxaður
3 tsk karry
½ tsk cayannapipar
1 tsk cummin
2 msk olía
1 kg gr lambalæri skorið í bita
3 dósir niðursoðnir tómatar
3 dl kókosmjólk
100 gr cashewhnetur
500 gr hrein jógúrt
2 msk saxað koriander
Aðferð:
Steikið lauk, hvítlauk, og engifer í 3-5 mínútur á pönnu við miðlungshita. Bætið karry, cayannapipar og cummin við og hrærið vel saman. Bætið lambakjötinu á pönnuna og veltið vel í kryddinu og lauknum. Bætið í niðursoðnum tómötum og kókosmjólk sjóðið í 30 – 40 mínútur. Lækkið hitann og bætið ristuðum cashewhnetum og jógúrti. Stráið ferskum koriander yfir og berið fram með hrísgrjónum
Indversk Raita sósa
500 g hrein jógúrt
2 Skallottulaukar fínt saxaður
1 ferskur grænn chili, skorinn og fræhreinsaður
1 -2 tsk. ferskt engifer, saxað smátt
1 hvítauksgeiri, smátt saxaður
1 agúrka afhýdd og kjarnhreinsuð
Safi úr 1 sítrónu
1/2 tsk. kúmenfræ, þurrristuð og möluð í morteli
Salt og nýmulinn svartur pipar
Aðferð.
Þurrristaðu kúmenfræ á pönnu og malaðu þau síðan í morteli. Settu jógúrt í skál, saxaðu lauk, chili, engifer og hvítlauk smátt og settu í skálina. Afhýddu agúrkuna og saxaðu smátt. Kreistu síðan mesta vökvann úr henni áður en þú hrærir henni saman við. kreistu sítrónusafa yfir. Fræin ættu að vera orðin köld og því geturðu bætt þeim út í. Saltaðu og pipraðu eftir smekk. Gott er að búa sósuna til áður og láta standa í kæli í a.m.k. 1 klst. fyrir notkun.
Hitaðu naan brauð í ofni og penslaðu síðan með hvítlauksolíu áður en þú berð það fram.
Gott er einnig að bera fram salat með þessum rétti.
Höfundur Árni Þór Arnórsson