top of page
bakadur-fiskur-i-kotasaelu-og-syrdum-rjo

Bakaður fiskur í kotasælu og sýrðum rjóma með rækjum og jurtum

Fyrir 4 persónur

 

600 gr þorsk eða ýsuflök

100 gr blaðlaukur

1 stk rauðparpika

200 gr rækjur

Salt og nýmaður svartur pipar

200 gr sýrður rjómi

200 gr kotasæla með hvítlauk

2 dl saxað ferskt basilikum

100 gr gratínostur

 

Aðferð:

Skerið fiskinn í bita og raðið smurt eldfastmót, bætið í  rækjunum, fíntskornum blaðlauk og papriku. Kryddið með salti og nýmuldum svörtum pipar. Hrærið saman sýrða rjóman, kotasæluna og basilikum. Hellið yfir fiskinn og stráið loks gratínostinum yfir. Bakið við 180° í c.a. 20 mínútur

Höfundur Árni Þór Arnórsson

www.gottimatinn.is

Join our mailing list

Never miss an update

bottom of page