top of page
fiskur_stor_rgb-1.jpg

Sterkur Steinbítur með eplum, kotasælu og grískri jógúrt

Fyrir 4-6 

 

Innihald:

600-800 gr steinbítur

3 msk heilhveiti

50 gr smjör

1 stk epli

1 stk laukur meðalstór

Salt og nýmulinn svartur pipar

 

Sósa:

1 dós kotasæla með ananas

1 dl matreiðslurjómi

200 gr grískt jógúrt

1 bréf 50 gr coconut curry spice paste (asian home gourmet)

1 msk maisenamjöl

 

Aðferð:

Steikið fiskinn á pönnu bætið við lauk og eplum. Hrærið saman PASTE gríska jógúrt, kotaælu með ananas, matreiðslurjómanum og maisenamjöli.

Hellið blöndunni yfir fiskinn og látið sjóða við vægan hita í 4-6 mínútur. Borið fram með hrísgrjónum og góðu salati

Höfundur Árni Þór Arnórsson

www.gottimatinn.is

Join our mailing list

Never miss an update

bottom of page