top of page

Lime, chilli og súkkulaðitruffla með pecanhnetum
400 g súkkulaði
1 dl rjómi
80 g lint smjör
Börkur af 1 limeávöxtum (einnig gott að nota appelsínubörk)
80 g saxaðar pecanhnetur
1 tsk chillimauk
Til að velta upp úr
60 g kókosmjöl
½ tsk chilliduft
Aðferð:
Bræðið súkkulaði og rjóma saman í örbylgju eða vatnsbaði. Bætið í limeberki, chillimauki og pecanhnetum hrærið svo að lokum lint smjör saman við. Kælið. Þegar massinn er farinn að stífna mótið kúlur og veltið upp úr kókosmjöli og chillidufti
Höfundur: Árni Þór Arnórsson
bottom of page